| Guðmundarbikarinn |
|
|
|
| Miðvikudagur, 28. september 2011 16:10 |
|
Guðmundarbikarinn er farandbikar sem veittur er árlega til minningar um Guðmund Karl Gíslason (f. 27. júní 1979, d. 7. júní 2004). Bikarinn fær ungur Íslendingur fyrir árangur í maraþonvegalengdinni í Reykjavíkurmaraþoni. Sá Íslendigur sem fyrstur er í mark í umræddri vegalengd og er 30 ára eða yngri á því ári sem Reykjavíkurmarþonið er þreytt, fær Guðmundarbikarinn í hvatningarskyni til varðveislu í eitt ár. Guðmundur æfði langhlaup með föður sínum og öðrum félögum í Hlaupasamtökum Lýðveldisins, sem hlaupa frá Vesturbæjarlauginni í Reykjavík. Hann sýndi mikla hæfileika í hlaupunum, skaust fljótt fram úr hlaupfélögum sínum og blandaði sér í toppbaráttu íþróttamanna í langhlaupum. Einungis 21 árs gamall hljóp hann sitt fyrsta Maraþon og hann lauk fjölmörgum slíkum bæði hér á landi og erlendis. Guðmundur lést af slysförum langt fyrir aldur fram tæplega 25 ára að aldri og ákváðu hlaupafélagar hans að heiðra minningu hans með þessum hætti. Þeir sem unnið hafa Guðmundarbikarinn til varðveislu í eitt ár eru: Sá sem hlýtur Guðmundarbikarinn árið 2011 er ungur og efnilegur hlaupari, Arnar Pétursson, aðeins tvítugur að aldri. Arnar var sigurvegari í Reykjavíkurmaraþoninu 2011 og jafnframt Íslandsmeistari í maraþoni. Hann hljóp á tímanum 2:44:15 sem er besti tími handhafa Guðmundarbikarsins fram til þessa. Þetta er í annað sinn sem Arnar hleypur maraþon, en hann hjóp einnig í Reykjavíkurmaraþoni árið 2009 og hlaut þá Guðmundarbikarinn. Arnar er eini hlauparinn sem unnið hefur Guðmundarbikarinn oftar en einu sinni.
|
























