| Skráning 2010 |
|
|
|
| Mánudagur, 07. desember 2009 10:41 |
|
Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 opnaði hér á marathon.is í janúar. Þú getur valið um að skrá þig (eða aðra) í maraþon, boðhlaup (42,2, km), hálfmaraþon, 10 km, 3 km skemmtiskokk eða Latabæjarhlaupið.
Forskráningu á netinu lýkur að morgni fimmtudagsins 19. ágúst 2010. Ef áhugasamir um þátttöku hafa ekki skráð sig fyrir þann tíma gefst þeim kostur á að skrá sig á skráningarhátíð, daginn fyrir hlaup þann 20. ágúst. Skráningarhátíð fyrir Latabæjarhlaup verður í Félagshúsi Þróttar í Laugardal en þátttakendur í öðrum vegalengdum skrá sig og sækja gögn í stúkubyggingu Laugardalsvallar. Sjá nánar hér.
Skráning er eingöngu gild þegar greitt hefur verið með Visa- eða Mastercard. Að lokinni skráningu fær viðkomandi senda kvittun í tölvupósti. Þau sem hafa ekki aðgang að Visa- eða Masterkorti geta haft samband við Reykjavíkurmaraþon á netfangið: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og fengið aðstoð við skráningu.
Við skráningu í hlaup á vegum Reykjavíkurmaraþons þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað í samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið. Smellið hér til að skoða skilmálana.
Vinsamlegast skráið netfang hjá hverjum og einum þátttakanda.
Við afhendingu hlaupagagna þann 20.ágúst eru þátttakendur beðnir að hafa kvittunina meðferðis, það flýtir fyrir afgreiðslu.
Að skráningu lokinni eignast hver einstaklingur sitt svæði undir heitinu: „Mínar síður“ þar sem hægt er að breyta persónuupplýsingum, skrá sig í sveitakeppni og breyta lykilorði. Einnig getur hver hlaupari breytt sinni vegalengd gegn breytingagjaldi. Bolastærð er hægt að fá breytt með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. fyrir 1.ágúst. Ef birgðir endast verður einnig hægt að fá nýja stærð á skráningahátíðinni þann 20. ágúst. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um bolastærðir í boði.
Til þess að fara inn á mínar síður þarft þú notandanafn og lykilorð sem sent er með tölvupósti eftir að þú hefur skráð þig í Reykjavikurmaraþon. Ef þig vantar þessar upplýsingar er hægt að fá þær sendar með tölvupóst með því að smella á hnappinn "Gleymt lykilorð" og upplýsingarnar verða sendar um hæl á netfangið þitt. Einnig er hægt að fá lykilorð sent með því að senda nafn og kennitölu á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Athugaðu að skráningarformið er í sjö liðum. Velja þarf nafn hlaups og síðan vegalengd. Þar sem er rautt merki við dálk er nauðsynlegt að fylla út upplýsingar -annars er ekki hægt að halda áfram skráningu.
Gangi þér vel! |


















