Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Skráningarhátíð 2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Þann 20.ágúst er skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Þann dag fá allir þátttakendur afhent keppnisgögn. Meðal annars þátttökunúmer, tímatökuflögu í skóinn og bol. Einnig verður hægt að skrá sig á skráningarhátíðinni.


Skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2010 fer fram í stúkubyggingu Laugardalsvallar. Afhending gagna fyrir Latabæjarhlaup verður í næsta húsi við Laugardalsvöllinn, Félagsheimili Þróttar í Laugardal. Afgreiðsla fer fram frá kl.10:00-19:00. Mjög gott aðgengi er að báðum byggingunum og nóg af bílastæðum. Við Laugardalsvöll eru 600 bílastæði og 190 við Félagsheimili Þróttar auk þess sem margir strætisvagnar stoppa í nágrenninu. Kort af svæðinu.


Öllum þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni er boðið í  pastaveislu á vegum Barilla þennan dag. Til þess að fá aðgang þarf að framvísa keppnisnúmeri. Þau sem áhuga hafa á að kaupa sérstaklega pastamáltíð (til dæmis fyrir gesti) þurfa að greiða 500 krónur. Pastaveislan er frá kl.16:00-19:00.


Hægt er að leigja bása á skráningarhátíðinni til að kynna heilsutengda starfsemi og vörur. Vinsamlega hafið samband á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. til að fá nánari upplýsingar.


Skemmtilegir og fræðandi fyrirlestrar verði í boði á skráningarhátíðinni eins og undanfarin ár. Nánari upplýsingar um fyrirlesara verða birtar þegar nær dregur hlaupi.

 
Borði
Borði
Borði