|
| Vegalengdir |
janúar - 1.júlí |
2.júlí - 18. ágúst |
20.ágúst |
|
|
|
|
|
|
3km-skemmtiskokk |
1.500 |
1.700 |
1.900 |
|
3km-barnagjald (16 ára og yngri) |
800 |
1.000 |
1.000 |
|
10 km |
2.900 |
3.700 |
4.200 |
|
21,1 km |
3.800 |
4.800 |
5.300 |
|
42,2 km |
4.500 |
6.800 |
7.900 |
| Boðhlaup (42,2 km) |
11.900 |
15.200 |
17.200 |
|
Latabæjarhlaup |
800 |
1.000 |
1.000 |
Athugið að þátttökugjaldið fer hækkandi eftir því sem nær dregur hlaupi. Verð miðast við einstakling nema í boðhlaupinu þar sem verð miðast við lið sem í geta verið 2-4 þátttakendur.
Fjölskylduafsláttur/barnaafsláttur - Skemmtiskokk og Latabæjarhlaup
- Fullorðnir og eitt barn borga fullt gjald en önnur börn borga 600 kr.
- Börn eru skilgreind sem 16 ára og yngri þ.e. fædd 1994 og síðar.
- Gildir fyrir börn í skemmtiskokk og Latabæjarhlaup en fullorðnir geta hlaupið hvaða vegalengd sem er.
- Fjölskylduafsláttur er veittur ef fjölskyldan skráir sig saman á netinu eða á skráningahátíð degi fyrir hlaup.
Skráningin er eingöngu gild ef greitt er með Visa eða Mastercard kreditkorti.
Við skráningu í hlaup á vegum Reykjavíkurmaraþons þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað í samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið. Smellið hér til að skoða skilmálana.
Innifalið í þátttökugjöldum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka er meðal annars rásnúmer, tímatökuflaga, þátttökuverðlaun, stuttermabolur, sundferð í einhverja af sundlaugum Reykjavíkur, Barilla pastaveisla á skráningarhátíð, drykkir frá Powerade í marki og á drykkjarstöðvum auk tímatöku í keppnisvegalengdum.
ÍTR býður öllum þátttakendum í sund í sundlaugum Reykjavíkur á hlaupadaginn eða daginn eftir. Sérstakur aðgöngumiði fylgir keppnisgögnum sem þarf að afhenda í sundlaugunum.
Nánari upplýsingar um vegalengdir og aldurstakmörk í vegalengdir má finna með því að smella hér.
Á "mínum síðum" getur hver og einn þátttakandi fengið aðgang að sínum upplýsingum. Þar verður hægt að breyta skráningu gegn 500 kr breytingagjaldi en athugið líka að engar endurgreiðslur eru gerðar á þátttökugjöldum.
|