Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Góðgerðamál Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 15. júlí 2010 00:08

Líkt og undanfarin ár gefst þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka kostur á að hlaupa í þágu góðs málefnis.


Í Reykjavíkurmaraþoninu 2008 var hægt að velja um 111 góðgerðarfélög til að hlaupa fyrir og niðurstaðan var að söfnuðust um 20 milljónir sem runnu til 100 góðgerðafélaga. Sú upphæð samanstóð af áheitasöfnun frá 3.646 hlaupurum. Árið 2009 tóku 67 góðgerðafélög þátt í söfnuninni en til þeirra safnaðist frá þúsund krónu og upp í 1,1 milljón. Alls fengu 27 félög meira en 100.000 krónur í sinn hlut en heildarfjöldi áheita var 4.016. 


Smelltu hér til að skoða hvaða góðgerðafélög hafa skráð sig til þátttöku í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010.


Það geta allir heitið á þá hlaupara sem valið hafa að hlaupa til góðs í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Hægt er að skrá áheit á auðveldan hátt á hlaupastyrkur.is. Nánari upplýsingar um skráningu áheita má einnig finna hér.


 
Borði
Borði
Borði